3.12.2010 | 12:11
Mjög gott framtak en...
Mér líst ágætlega á þessa niðurstöðu við fyrstu sýn. Auðvitað þarf maður að skoða þessar lausnir nánar til að geta séð heildarmyndina.
Ég er þó enn á því að afnám verðtrygginga sé besta afskriftin. Semsagt að festa vísitöluna við vístölu dagsins í dag.
En þetta er þó jákvætt skref og mun betra en status quo.
60 þúsund heimili njóta góðs af | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.11.2010 | 17:12
Til hamingju!
Ég vil óska þeim sem náðu kjöri til hamingju.
Í fljótu bragði get ég ekki séð að þessir einstaklingar séu eitthvað verri en alþingismennirnir sem við höfum kosið.
Nú hvet ég þá sem sitja á stjórnlagaþingi að vinna af heilindum og hugsa fyrst og síðast um þjóðarhag.
Athyglisvert að þeir sem fengu flest atkvæði eru með fleiri atkvæði en alþingismaður er með bak við sig.
25 kjörin á stjórnlagaþing | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.11.2010 | 21:08
Hefði Sigurður Kári trekkt að?
Það væri nú gaman ef Sigurður Kári hefði tekið þátt og boðið sig fram til stjórnlagaþings. Ætli hann hefði trekkt að og komið kjörsókn yfir 50%Sigurður Kári hefði vel getað sagt af sér þingmennsku til að láta gott af sér leiða.
Það kemur maður í manns stað, þetta getur varla verið flókið að hlusta á foringjann og elta hans skoðanir.
Við skulum nú fyrst sjá hvað kemur út úr stjórnlagaþingi áður en við rökkum það niður.
Kosningaþátttakan áfall fyrir Jóhönnu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.11.2010 | 21:43
Dræm kjörsókn
Því miður eru fáir sem mættu á kjörstað í gær. Mér þykir synd að almenningur nýtti sér ekki þetta tækifæri að fá loksins að velja fólk með beinum hætti.
Stjórnvöld, fjölmiðlar og menntastofnanir féllu á þessu prófi. Það er sorglegt að yfirvöld hafi ekki hvatt til þátttöku. Það er mjög sorglegt að fjölmiðlar fóru ekki í málefnalega umræðu og enn sorglegra er að átta sig á að háskólasamfélagið tók ekki virkan þátt. En þetta er eitthvað sem við verðum að læra af og standa okkur betur næst.
Ég vil nota tækifæri og þakka fyrir mig. Það verður fróðlegt að sjá hvað kemur út úr þessum kosningum. Það verður einnig fróðlegt að sjá aldursdreifingu þeirra sem kusu, íbúar hvaða landshluta voru duglegastir og svo framvegis.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2010 | 16:02
Alvarlegast af öllu eru snjóboltaáhrifin
Guðmundur segir
Miðað við þær tillögur sem stjórnvöld eru með í dag í skattamálum þá rýrna ráðstöfunartekjur heimilanna um 30 milljarða á næsta ári. Það þýðir að þessir 30 milljarðar fara ekki inn í hagkerfið. Þeir fara bara beint inn í ríkissjóð sem þýðir enn meiri samdrátt. Hvorki fyrirtækin eða heimilin fara að framkvæma neitt undir þessum kringumstæðum. Ef ríkisstjórnin ætlar að halda áfram á þessari braut þá getur það ekki endað öðruvísi en að Ísland verði láglaunasvæði.
En þetta er nefnilega vandamálið. Ef tekjur lækka, þá hefur fólk minna á milli handanna, minni verslun, minni velta.
Í sjálfu sér er þetta ekki flókið, menn þurfa bara að sjá þetta og hafa kjark til að gera eitthvað.
Verðmætasta fólkið að fara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2010 | 15:22
Allir á kjörstað. Viltu hafa bein áhrif?
Í fyrsta skipti er okkur boðið að hafa bein áhrif á grunnlög landsins. Grunnlögin móta samfélagið. Hefur þú kjark til að mæta og láta þína skoðun í ljós?
Ef þú vilt auðlindir í þjóðareign og ef þú ert með þjóðaratkvæðagreiðslum, þá vonast ég til að þú hafir kjark til að merkja við 9497.
Ég hef kjark til að fylgja mínum málum eftir.
13% kjörsókn í Reykjavík kl. 14 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2010 | 00:15
Hvað mun þetta þýða?
Veiðiheimildir gegn gjaldi er fyrirsögnin. Hver er þá fréttin? Er fréttin sú að gjald sé tekið? Varla því er útgerðin ekki að borga gjald nú þegar, þó það sé nú lágt.
Er fréttin þá auknar heimildir, en er átt við að þær verði boðnar út? Ég vona svo sannarlega að svo sé. Ef það er raunin þá erum við að tala um töluverðar breytingar.
Veiðiheimildir gegn gjaldi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2010 | 00:10
Gott framtak
Sævar virðist vera snjall. Það er flott framtak hjá honum að standa fyrir þessu. Oftast eru þetta fallegir skartgripir á ágætis verði.
Svo er það góð tilhugsun að hluti af söluverðinu fari í gott málefni.
Gordjöss fyrir sykursjúk börn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2010 | 00:07
Makríll
Nú er spurning, höfðum við góða ástæðu til að ganga út?
Það er eins gott að rökin eru góð því annars lítur þetta nú ekki vel út.
Lýsa vonbrigðum með viðbrögð Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.11.2010 | 23:30
Taktu þátt, 27. nóvember
Kæri kjósandi,
Á morgun er gengið til kosninga. Þessar kosningar eru mjög mikilvægar. Það er leitt að sjá og heyra fólk tala þessar kosningar niður. Allt er svo flókið og erfitt.
Að kjósa er ekki erfitt fyrir hugsandi fólk. Þessar kosningar snúast um að velja það fólk sem ykkur finnst best og raða því í röð frá 1 til 25. Nóg er að kjósa einn. Sá frambjóðandi sem ykkur finnst mest spunnið í, setjið þið í fyrsta sæti.
Það þarf ekki mikið að spá í útreikningum, þær eru tæknilegs eðlis. Þú sem kjósandi þarft aðeins að hafa áhyggjur af því hverja þú velur.
Málefnabaráttu frambjóðenda er æði misjöfn. Því er mikilvægt að þú vandir valið. Mín sýn er skýr:
- Auðlindir í þjóðareign. Að skilgreint sé hvaða auðlindir tilheyri þjóðinni
- Þjóðin fær rétt itl að taka afstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslu í ýmsum málum.
Vissulega er fullt af öðrum góðum málum. Sumir frambjóðendur hafa talað um upplýsingaskyldu, mannréttindi, eignarrétt og þrískiptingu valds. Þetta eru allt góð og gild mál sem ég get vel hugsað mér að styðja.
Ég hef hins vegar einbeitt mér að þessum tveimur málum sem ég nefndi fyrst. Það er ekki vegna þess að ég telji engin önnur mál ekki góð, heldur er ástæðan sú að það er algjört grundvallaratriði að auðlindir og réttur kjósenda séu bundin í stjórnarskrá.
Kæri kjósandi, ég óska eftir að þú merkir við 9497 á kjörseðilinn.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)